ad space left ad space right

Blogg

  • Prófílmynd
    Klausturs keppendur ATH !
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, í gær kl. 18:16

     

    Keppendafundur verður haldinn á miðvikudaginn 23.05.2012. Kl 18:30 hjá
    bifreiðaumboðinu BL, Sævarhöfða 2.

    Öllum keppendum er boðið til kynningarfundar n.k. miðvikudag og á sama
    tíma er keppendum boðið að koma með hjól, hjálm og pappíra til skoðunar.

    Það er um að gera að nýta sér þetta til að lækka stressfaktorinn þegar
    kemur að keppninni. Þeir sem ganga frá skoðun og skráningu fá einnig
    úthlutað límmiða-kittinu með keppnisnúmerinu.

    Skoðunin verður opin til kl. 20:00.

    ATH! þeir sem ekki hafa greitt keppnisgjaldið hafa ekki keppnisrétt.
    Endilega ef þú átt eftir að greiða gjaldið að ganga frá því á
    miðvikudaginn.

    Sjáumst kát!

     

    Aðrar mikilvægar upplýsingar - Lesist vel!

    Það er mikið spurt um hvaða pappíra þarf að hafa með sér í skoðun.

    Í raun er bara nóg að skila inn “Þátttökuyfirlýsingunni”. (Hún verður
    tiltæk við skráningu & skoðun).

    Hver og einn þarf að skila inn undirritaðri yfirlýsingu (+ undirritun
    forráðamanns ef keppandi er yngri en 18 ára.).

    Í þessari yfirlýsingu kemur fram að undirritaður staðfesti að hjólið
    sem hann notar í keppninni sé löglegt í alla staði (tryggt & skoðað).
    Einnig ábyrgist keppandi með undirritun sinni að fylgja öllum reglum
    keppninnar og fl. (frekari upplýsingar á www.msisport.is ).

    Það er því rétt að ítreka það við keppendur að lesa vel yfirlýsinguna –
    það fylgir því mikil ábyrgð að undirrita slíka yfirlýsingu.

    Að taka með sér skráningarplötu og/eða tryggingarpappíra er fínt – en
    það er í raun ekki hlutverk keppnishaldara að fylgjast með því hvort
    fólk er að fara að landslögum varðandi keppnistækin.

    MUNIÐ - Ábyrgðin liggur öll á herðum keppandans í þessum efnum!

    Auðvitað ætlar enginn að lenda í slysi – en þau verða nú samt!
    Við slys þurfa hlutaðeigandi að standa skil á sinni ábyrgð í því.
    Enginn vill standa frammi fyrir því að vera réttindalaus í slíkri stöðu.
    Óskráð, óskoðað eða ótryggt hjól gæti sett viðkomandi í verulega slæma
    stöðu.
    Varðandi þessi tryggingarmál má benda keppendum á það, að sum
    tryggingafélög fara fram á að keppandi kaupi sérstakan keppnis-viðauka.
    Í því verður hver að skoða sína þörf fyrir sig.

    SKOÐUN FYRIR KEPPNI:

    Keppnishaldari fer yfir keppnishjól fyrir keppni. Það er gert til að
    tryggja að ekki séu einhverjir vankantar á keppnistækinu sem gætu valdið
    slysum og eins til að fylgjast með því að hjól séu rétt merkt.
    Þó hjól hafi verið skoðað samkvæmt umferðarlögum, þá gæti t.d.
    handfang, standpetali eða plast hafa brotnað við síðustu notkun og
    oddhvassar brúnir myndast. Slíkt þarf að vera búið að laga til að fá að
    taka þátt í keppni. Eðlilega þurfa bremsur að virka, teinar og gjörð að
    vera í lagi, ásamt því að hjólalegur séu ekki áberandi lélegar.
    Hjól þarf að vera áberandi merkt, með réttu keppnisnúmeri. Ætti ekki
    að vera vandamál núna þar eð límmiðarnir fylgja með skráningunni.
    Einnig þarf keppandi að taka með sér hjálminn til skoðunar. Marðir eða
    sprungnir hjálmar eru ekki leyfilegir.

    Það er um að gera að fara vel yfir þetta svo ekki komi til útilokunnar
    frá keppni.



    Kveðjur
    Keppnisstjórn


  • Prófílmynd
    Þessir myndu klárlega renna vel niður !
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, í gær kl. 22:24

    Spurning um að eiga nokkra svona í húsbílnum :)


  • Prófílmynd
    Hangtown torrent !
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, í gær kl. 21:43

    Hér er hægt að ná í fyrstu umferðina AMA Outdoors sem haldin var í Hangtown í gær. En fyrri motoin getiði séð á Allisport.com 

    Enjoy !

    450 Moto 2

    250 Moto 2


  • Prófílmynd
    Forsala á nýjum Morgan peysum.
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, lau. kl. 13:21

    Helflottar, renndar að framan og stóru Team Morgan logoi að aftan, engar drasl peysur !. Verðið er litlar 10 þús kr, og er kostnaðarverð !!!!. Áhugasamir geta haft samband í gegnum binni hja morgan.is


  • Prófílmynd
    Ertu rétt skráður og með réttum mönnum ?
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, lau. kl. 09:12

    Halló keppendur á Klaustri 2012!


    Nú er listinn fyrir Klaustur kominn á www.motocross.is og því tilvalið
    að renna yfir hann og tryggja að þín skráning sé rétt.

    Ef hún er það EKKI, og þú ert ekki búinn að senda inn breytingu - Þá
    skaltu endilega drífa í því að senda inn lýsingu á því hverju þarf að
    breyta.
    Endilega að tilkynna um forföll.
    Ef allt er eins og það á að vera - þ.e.a.s. réttir keppendur í rétta
    liðinu og í rétta flokknum - þá er ekkert annað að gera en bara gera
    hjólið klárt.

    Listanum sem á www.motocross.is er raðað í stafrófsröð á "Nafn 1"

    Vonandi náum við að hreinsa listann sem fyrst og þá verður hann settur
    fram, leiðréttur og raðað eftir keppnisnúmerum.

    Vinsamlegast athugið að við reyndum að halda númerum óbreyttum, en það
    hafa bara verið svo rosalega margar breytingar að það hefur reynst
    ómögulegt.
    Menn halda að sjálfsögðu röðinni frá í fyrra, eða færast hugsanlega
    framar vegna forfalla.


    Fyrirfram þakkir fyrir snögg viðbrögð,

    Skráningarnefndin.


  • Prófílmynd
    Hverju spáiru fyrir Hangtown ?
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 15 maí kl. 23:51

    See More Videos at AlliSports.com Embed

    Fyrsta umferðin í AMA Motocross er bara eftir nokkra daga (19 maí) þá er við hæfi að peppa okkur aðeins upp og taka smá gisk á fyrstu umferðina. Nú eru tveir lykilmenn út eins og flestir vita, þeir Ryan Villopoto og Chad Reed.

    Það var hundfúlt að missa út Ben Townley þar sem hann er helgóður outdoors maður, en hann ætlaði að setjast á hjólið hans Chad Reed fyrir 22 Motosports. Trey Canard hefur ekki ennþá boðað endurkomu en hann fór nýlega í uppskurð á baki eftir krassið í vetur í supercrossinu.

    Þeir sem ættu að verma toppsætin eru : James Stewart, Ryan Dungey, Davi Millsaps, Andrew Short, Jake Weimer, Justin Breyton og Bret Metcalfe svo einhverjir eru nefndir.

    En það má samt ekki útiloka nokkra sem ættu að koma sterkir inn eftir meiðsli, og má það nefna Kyle Regal sem tekur hjólið hans JS í JGR og Tyla Rattray sem fær hjólið hans Villopoto !

    Svo síðast en ekki síst er það Mike Alessi sem hefur ætíð sínt það og sannað að hann er eitur sterkur utandyra.

    Þegar öllu er á botnin hvolft þá eigum við veislu fyrir höndum, mun JS halda sér á hjólinu, mun guð og jesú fylgja Dungey eða verður það töffarinn Josh Grant sem kemur og sýnir þessum andskotum hvernig á að keyra torfæruhjól ?

     


    Nú er bara spurningin þessi -  Hverjir heldur þú að endi í topp 5 í fyrstu umferðinni ?


  • Prófílmynd
    Þegar þú hatar blessuðu rigninguna
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 14 maí kl. 19:28

    Þá er enginn vinur þinn....ekki tréin né gleraugun :)

     


  • Prófílmynd
    Verður gaman að fylgjast með þessum !
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 14 maí kl. 17:22

    Privateer kappar sem ætla leggja land undir fót í Ameríkunni og reyna við AMA Outdoors. Flottur trukkur sem þeir eru á :)

     


  • Prófílmynd
    Klausturs tilboð niður í Púka.
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 14 maí kl. 12:55

    Endilega tjékkið á þessu og græjið ykkur upp fyrir Klaustur 2012.

    Smellið á mynd til að stækka !

     


  • Prófílmynd
    Ryan Huges með í Hangtown
    Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 13 maí kl. 11:50

    Þvílik snild. Það verður veisla að sjá þennan snilling keppa enn einu sinni á  meðal toppmanna í AMA Motocrossinu í fyrstu umferðinni 19 Mai.

     


Síða 1 af 51
Næsta SíðaSíðasta Síða
ad space right tower top