Husqvarna enduro línan fyrir 2012. Deildin samanstendur af 2 stroke WR (WR125, WR250, WR300) og 4 stroke TE (TE250, TE310, TE449 and TE511)
Husqvarna enduro línan fyrir 2012. Deildin samanstendur af 2 stroke WR (WR125, WR250, WR300) og 4 stroke TE (TE250, TE310, TE449 and TE511)
Skipuleggjendur RedBull romaniacs héldu hrikalega flott mót um helgina í Tyrklandi. Mótið hélt yfirskriftina " Frá sjó til skýja " ef við tölum um nákvæma lýsingu á íslenskri tungu. Mótið sem fyrst var haldið í fyrra fékk nú stuðning frá RedBull X Adventure hópnum sem hefur haldið öll Hardenduro mótin hingað til. Mótið byrjaði með 15 mínutna "beach race" sem raðaði hröðustu mönnum fremst á línu fyrir komandi rugl. Eftir það var haldið til fjalla í alvöru enduro.

Þarna voru allir helstu hardenduro ökumenn heims samankomnir - Graham Jarvis, Chris Birch, Andres Lettenbicheler, Darryl Curtis, Johnny Walker, Xavier Galindo og fleiri og fleiri.

En að lokum var það enginn annar en Graham Jarvis sem sigraði, Johnny Walker annar og Chris Birch þriðji.
Fleiri myndir " hér "
Video frá degi 1
Videó frá degi 2
Hvenær ætli það verði þegar við sjáum okkar best enduro ökumann - Kára #46 taka þátt í svona bulli ?
Hin stórgóða seria af Inside the outdoors kemur hér með þriðju seríuna sem fer ýtarlega yfir 2011 AMA Motocrossið sem er nýyfirstaðið. Ef þið hafið ekki séð hinar seríunar, en kannist við myndirnar " The great outdoors " þá ættirðu að gefa þér cs 20 mín og horfa þennan þátt. Því þetta er frá þeim sömu sem gerðu þær myndir.
Enjoy !
Nú fer sandaksturinn að detta í gang fljótlega hjá sumum sem hafa gaman því. þannig ef þú hefur gleymt því hvernig þú átt að kvelja tugguna í sandi, þá ættiru að horfa á þetta videó !
Maður fær aldrei leið á því að horfa á þennan kappa.
Já það er formlegt að kappinn er kominn aftur á Suzuki og keyrir núna liðið á eigin fjárhag. Það mun án vafa peppa hann upp til að reyna sitt allra besta til að sýna fólki að Mike Alessi er topp þrir gaur. Fyrir mitt leyti lítur hann miklu betur út á Suzuki heldur en KTM. Go Mike !
Hér er frábært dæmi hvernig þú getur notað trial tæknina beint í enduro.
The jab zab
Áttu 2-stroke vélsleða eða torfæruhjól og ertu alltaf í veseni með úrbræðslur. Þá er þetta kannski ekki vitlaust leið til að athuga hvort mótorinn dragi falsk loft einhverstaðar sem orsakar síendurteknar úrbræðslur.

Vefurinn bað um verð í olíu og loftsíu í Suzuki RMZ 250F árg 2008 í þetta skiptið. Og fékk þessi verð frá okkar helstu verslunum sem sérhæfa sig í að þjónusta allar helstu tegundir hjóla.
www.Pukinn.com
Kyoto olíusía : 1.190 kr
Champion olíusía : 1.990 kr
DT-1 loftsía : 2.490 kr (www.dt1filters.com)
www.nitro.is
Hi-Flo Olíusía : 998 kr
HO-Flo Loftsía : 3.518 kr
www.jhmsport.is
Hi-Flo Olíusía : 1.300 kr
Hi-Flo loftsía : 3.600 kr (Twin-Air)
www.Mxsport.is
Tusk olíusía : 900 kr
No-Toil loftsía : 2.900 kr (Bæði tilbúin og ótilbúin)
www.proxmotorsport.com
Hi-Flo Olíusía : 800 kr
Finna Loftsíur : 2.300 kr
www.Suzuki.is
Original Suzuki Olíusía : 1.490 kr.
Original Suzuki Loftsía : 5.788 kr.
No-Toil Loftsía : 2.900 kr